Úrslit forvalsins
Í gærkvöld voru úrslit forvals VG í Norðausturkjördæmi opinberuð (röðun í átta efstu sæti má m.a. sjá á www.vg.is ).
Eins og kunnugt er stefndi ég á 5.-6. sæti framboðslistans. Sjálfur var ég allan tímann frekar stóískur yfir niðurstöðunni. Ég vonaðist vitanlega eftir því að ná þeim árangri sem að var stefnt en gekk þess ódulinn að sú staðreynd ég væri nýr í flokknum myndi þyngja róðurinn þar sem fyrirséð var að meginhluti flokksfélaga sem rétt áttu á að kjósa í forvalinu þekktu lítið eða ekkert til mín. Samkeppnin var líka hörð, 21 frambjóðandi að takast á 8 sæti. Það kom mér því ekki svo mjög á óvart að ég skyldi ekki ná einu af 8 efstu sætunum. En miðað við aðstæður var sú kosning sem ég fékk ekkert afhroð þannig að ég þarf ekki að vera ósáttur þó því sé ekki að leyna að ég hafi gert mér vonir um betri niðurstöðu.
En burtséð frá mínum eigin árangri í þessu forvali verð ég að viðurkenna að niðurstaða þess í heild var önnur en ég hafði vænst. Því miður virðast flokksmenn hér í kjördæminu ekki hafa séð ástæðu til að endurnýja í fremstu röð frambjóðenda á listanum. Á því tel ég að hefði verið brýn nauðsyn enda hefur verið hávær krafa í samfélaginu um endurnýjun í flokkunum og hefur sú krafa beinst að þeim öllum (hvort sem fólki finnst það sanngjarnt eður ei). Með fullri virðingu fyrir því ágæta fólki sem fékk brautargengi í forvalinu um liðna helgi er ég hræddur um að sá skortur á endurnýjun sem niðurstaðan ber með sér verði flokknum fjötur um fót í komandi kosningum.
Mig langar að ljúka þessu á að þakka þeim sem studdu mig og óska frambjóðendum VG í Norðausturkjördæmi og flokknum í heild góðs gengis í kosningunum í apríl.
mars 5, 2009 kl. 10:19 am
Þetta voru fullkomlega glötuð úrslit og sýnir fram á það að forvöl/prófkjör skila jafnan mjög íhaldsamri niðurstöðu.
mars 5, 2009 kl. 11:57 am
Sammála!! Vantar nýtt blóð, það er það sem öll mótmælin hafa gengið út á. Nýtt fólk sem ekki er fast í flokksræðinu.
Gengur bara betur næst
mars 5, 2009 kl. 3:42 pm
Sæll og blessaður.
Hef nú svipaða sögu að segja og þú um þetta allt saman. Ljóst er að þetta verður erfiður róður í kjördæminu og ekki víst að annað fiskist en áskrifendurnir hans Steingríms.
En vonum hið besta engu að síður.
Mbk,
Drengur Óla Þorsteinsson
mars 5, 2009 kl. 4:52 pm
Já, það þýðir ekki annað en að vera bjartsýnn.
mars 16, 2009 kl. 8:52 pm
Sæll frændi. Já Það er alltaf erfitt að kynna nýtt fólk, allir vilja endurnýjun er eru svo til í að finna nýliðum allt til foráttu.
Ég veit að þú átt varla skap til þess að verða kjölturakki foringjans, en það virðist vera það eina sem dugar til skjóts frama í pólitíkinni.
Þú kemur bara sterkari inn næst,
kveðja HH